Photo of Plokkfiskur

Plokkfiskur

By Úlfar Eysteinsson

Úlfar Eysteinsson

Fastur réttur á veitingastaðnum Þrírfrakkar hjá Úlfari.

Prep: 20 minCook: 25 minServes 4Updated Sep 10, 2026

Þessi uppskrift kemur úr smiðju hins kunna matreiðslumeistara Úlfars Eysteinssonar frá veitingastaðnum Þrír Frakkar. Þetta er klassískur og vinsæll íslenskur plokkfiskur sem þykir með þeim bestu sem völ er á.

Ingredients

  • 800 gþorskflök, roð- og beinhreinsuð
  • 1 lmjólk
  • 1 stk.laukur, saxaður
  • 50 gsmjör
  • 50 ghveiti
  • 5 stk.soðnar kartöflur, skornar í bita
  • 2 msk.smjör
  • salt, pipar og karrí

Instructions

  1. Sjóðið þorskinn í saltvatni þar til hann er eldaður í gegn og færið hann svo upp úr soðinu.

  2. Bræðið 50 g af smjöri í potti, bætið hveitinu út í og hrærið stanslaust til að búa til smjörbollu.

  3. Hitið mjólkina að suðu ásamt lauk og kryddi. Bætið smjörbollunni út í mjólkina og hrærið þar til sósan er orðin þykk. Takið hluta af sósunni frá til að eiga til að bæta í síðar ef þarf.

  4. Setjið soðna fiskinn út í sósuna og blandið varlega saman. Ef plokkfiskurinn er of þykkur eða þurr, bætið þá við sósunni sem var tekin frá.

  5. Bætið kartöflum og 2 msk af smjöri út í. Smakkið til með salti, pipar og karrí eftir smekk. Berið fram með rúgbrauði og smjöri, eða setjið í eldfast mót, stráið osti yfir og hitið í ofni þar til osturinn hefur bráðnað.

Shared on familycookbookz — family food heritage