
A family recipe
Fiskibollur með karrýsósu
Keep this recipe forever
Save it to your own family cookbook, with Ragna.is's name on it. Free, no card needed.
https://www.ragna.is/2026/05/fiskibollur.htmlKlassískar og heimilislegar fiskibollur sem minna á æskuheimilið. Þær eru mjúkar að innan, fallega brúnaðar að utan og bornar fram með dýrindis karrýsósu. Þessi uppskrift er einföld, ódýr og slær alltaf í gegn hjá allri fjölskyldunni.
- Prep
- 20 min
- Cook
- 30 min
- Serves
- 6
- Updated
- Sep 10, 2026
Ingredients
15 items
Fiskibollur
- 1 kg ýsuflök
- 1 stór laukur
- 100 gr hveiti
- 100 gr kartöflumjöl
- 3 egg
- 2 tsk pipar
- 2-3 tsk salt
- smá hvítlauksduft
- eftir þörfum mjólk
Karrýsósa
- 1 laukur, fínt saxaður
- góður slurkur karrý
- 50 gr smjör
- 50 gr hveiti
- mjólk
- 1/2 kubbur kjötkraftur
Instructions
11 steps
Undirbúa fiskibollur
Setjið laukinn í matvinnsluvél og saxið fínt.
Bætið hveiti, kartöflumjöli og eggjum saman við og mixið vel saman.
Bætið fiskinum útí ásamt salti, pipar og hvítlauksdufti og mixið þangað til deigið er orðið slétt.
Ef deigið er of þykkt, bætið við smá mjólk. Ef það er of þunnt, bætið við meira hveiti. Deigið á að vera þægilegt að móta með skeið.
Mótið bollurnar með skeið og steikið á pönnu á miðlungs hita. Brúnið vel á báðum hliðum.
Setjið þær inní 180°C heitan ofn á yfir og undir hita í 15 mínútur til að gegnumsteikja þær.
Undirbúa karrýsósu
Notið sömu pönnu og þið steiktuð bollurnar á. Setjið fínt saxaðan lauk á pönnuna ásamt góðum slurk af karrý og steikið saman.
Bætið 50 gr af smjöri útá og steikið áfram.
Bætið 50 gr af hveiti útí og steikið smá svona jafning.
Hellið mjólk útá og hrærið vel þangað til sósan þykknar.
Setjið 1/2 kubb af kjötkrafti útí og bragðbætið svo til með meira karrý ef ykkur finnst þurfa.