
A family recipe
Alvöru íslensk kjötsúpa
Keep this recipe forever
Save it to your own family cookbook, with Ragna Björg's name on it. Free, no card needed.
Dásamlega bragðmikil og góð íslensk kjötsúpa sem klikkar aldrei. Þessi uppskrift er algjör negla og súpan er jafnvel enn betri daginn eftir.
- Prep
- 20 min
- Cook
- 1 h 5 min
- Serves
- 8
- Updated
- Sep 10, 2026
Ingredients
11 items
- 3 lítar vatn
- 1,5-2 kg súpukjöt
- 1/2 dl hrísgrjón (má sleppa)
- 2 msk salt
- örlítill hvítur pipar
- 5-8 gulrætur
- 8-10 kartöflur
- 1-2 rófur (smáar)
- 1/4 hvítkálsshaus
- 1 laukur
- 1 dl súpujurtir
Instructions
5 steps
Skolið af kjötinu og setjið í pott ásamt 3 lítrum af vatni. Á meðan suðan er að koma upp, fjarlægið froðuna sem myndast ofan á með skeið eða ausu. Sjóðið í 45 mínútur.
Á meðan kjötið sýður, undirbúið grænmetið. Skerið gulrætur í ca 5 mm þykkar sneiðar, rófur og kartöflur í teninga, laukinn í litla bita og hvítkálshausinn í teninga.
Þegar 45 mínútur eru liðnar, bætið súpujurtum, lauk, kartöflum, rófum, gulrótum, salti, hvítum pipar og hrísgrjónum (ef notuð) út í pottinn.
Sjóðið súpuna áfram í ca 15-20 mínútur.
Að suðutímanum loknum, takið kjötið upp úr, hreinsið það af beinunum, fjarlægið sinar og fitu, rífið í smærri bita og setjið aftur út í súpuna.